Það er algengt að einstaklingar með þessa sjúkdóma þjáist einnig af meðvirkni. Það þýðir að þeir hafi í of langan tíma gert aðra hluti, fólk eða hugmyndir að ráðandi öflum í lífi sínu. Meðvirkni orsakar það að við kunnum hvorki að hugsa út frá okkur sjálfum né um okkur sjálf. Meðvirkir einstaklingar kunna líklega að hugsa um flesta aðra en hafa ekki lært að gera sig sjálfa að viðfangi lífs síns. Þeir vita sjaldan hvernig þeim líður, hvers þeir þarfnast eða hvernig þeir geta bætt líf sitt. (Margir ná bata í 12 spora samtökum, t.d. coda - coda.is.) Á endanum gengur viðkomandi svo nærri sjálfum sér að bæði andleg og líkamleg einkenni fara að gera vart við sig og hreinlega öskra á hann að hugsa betur um sig.
Það var eftirminnilegur fyrirlestur sem ég fór á hjá hómópata, hann fjallaði um síþreytu og vefjagigt. Hómópatinn hafði meðhöndlað marga einstaklinga sem voru á hefðbundinn hátt greindir með þessa sjúkdóma. Hann sagði að oft hefðu þessir einstaklingar þurft að bera mikla ábyrgð á öðrum og ekki upplifað að einhver hugsaði um þá eða bæri ábyrgð á þeim. Þeir væru þess vegna sífellt á verði gagnvart hlutum sem hugsanlega gætu gerst í lífi ástvina þeirra, á þann hátt voru þeir í nokkurskonar guðshlutverki og náðu aldrei andlegri hvíld. Aðferð hómópatans við að meðhöndla þessa skjólstæðinga sína fólst meðal annars í ákveðinni hugleiðslutækni. Hómópatinn lét skjólstæðinginn leggjast á bekk og slaka á. Þá fullvissaði hómópatinn skjólstæðinginn um að það væri ekkert sem hann þyrfti að hafa áhyggjur af því nú ætlaði hann, hómópatinn að sjá um skjóstæðing sinn og passa að ekkert kæmi fyrir, hvorki hann sjálfan né ástvini hans. Þessa æfingu gerði hómópatinn reglulega með skjólstæðingi sínum sem hjálpaði honum að treysta lífinu, sleppa tökunum af áhyggjunum og hvílast andlega.
Orðtakið "Lifðu og leyfðu öðrum að lifa" á vel við hér. Þarna styðja báðir þættir hvor annan, það er ekki nóg að við leyfum öðrum að lifa heldur styðjum við líf annarra með því að lifa einnig okkar lífi eins og hæfir okkur.
Hómópatía virkar oft mjög vel á einstaklinga sem þjást af þessum einkennum. En 20 mismunandi einstaklingar sem þjást af vefjagigt samkvæmt hefðbundnum læknisgreiningum, fá jafnvel 20 mismunandi meðferðir hjá hómópata þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi og einkennamyndin ólík á milli einstaklinga. Hómópatían leitar að orsök einkennanna í lífssögunni. Hún gerir einnig ráð fyrir að við lifum í takt við ákveðin náttúrulögmál sem gera það að verkum að líf leitar í jafnvægi eða heilbrigði. Náttúrulögmálin þurfum við að virða. Vithoulkas segir í bók sinni The Science of Homoeopathy: (bls 14)
- Þegar menn brjóta á náttúrulögmálunum, þá leiðir það til margs konar umhverfisspillingar sem orsakar meiri streitu og hún hamlar svo hæfni einstaklingsins til þess að virka vel.
- Mannkyn hefur smám saman glatað innri meðvitund sinni sem gerir manneskjum kleift að bera skynbragð á þau náttúrulögmál sem ber að virða.
Það er flókið fyrir manneskjur að lifa í tengslum við innsæi sitt, náttúruna og lífið, í menningarheimi sem er upptekinn af þáttum sem auka á meðvirkni einstaklinga. Hugmyndafræðin sem lifir í samfélagi okkar stuðlar að sjúkdómum og það þarf sterk bein til þess að lifa gegn þessum hugmyndum og gera eigin heilsu og líf í takt við náttúrulegt eðli okkar, mikilvægara.
Lisa Klein Weber hefur áhugaverða sögu að segja af bata sínum af vefjagigt. Hún hefur einnig byggt upp mjög góða síðu um sjúkdóminn og sett þar fram mikilvæga þekkingu varðandi hann sem einnig er byggð á eigin reynslu. http://www.releasefibromyalgia.com/my-healing-curing-and-reversing-fibromyalgia-philosophy-and-faq/
Lisa Klein Weber hefur áhugaverða sögu að segja af bata sínum af vefjagigt. Hún hefur einnig byggt upp mjög góða síðu um sjúkdóminn og sett þar fram mikilvæga þekkingu varðandi hann sem einnig er byggð á eigin reynslu. http://www.releasefibromyalgia.com/my-healing-curing-and-reversing-fibromyalgia-philosophy-and-faq/
No comments:
Post a Comment